Topp 10 listinn í Bollywood

Ég verð að viðurkenna það að tónlistarmyndbandið með Prabhu Deva, sem ég lét fylgja með þessari færslu hér er ekki dæmigert fyrir það sem verið er að gera hér í Bollywood í dag og einnig það að ég valdi það fyrst og fremst vegna þess að mér fannst það frekar ýkt og fyndið.   En samt sem áður, þá eru vestræn áhrif mjög rík í flestu sem er verið að gera hérna, sem blandast stundum illa við indverska menningu.   Þessi eftirsókn í vestræna menningu er svo sem mjög góð fyrir mig, því ég er eina ljóshærða fyrirsætan hérna hjá Eskimó Models í Indlandi, eins og sjá má hér (smellið á myndina af mér ef þið viljið sjá fleiri myndir) og gerir að verkum að eftirspurn er eftir minni týpu.  Fínt er líka að ég er nokkuð örugg um að þurfa ekki að taka að mér hlutverk þar sem eitthvað kossaflens er á ferðinni, en Indverjar eru ekkert fyrir slíkt eins og Richard Gere fékk að kynnast fyrir nokkrum vikum síðan (sjá frétt um það hér).  Ég læt hér fylgja myndband með brotum af topp 10 vinsælustu kvikmyndalögunum í Bollywood, eins og listinn leit út einhverntíman í desember síðastliðinn, svo þið hafið nú aðeins betri mynd af þessu. Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband